C Bekkur

Very NICE - High Five

10.09.2007 22:55:27 / Írena

....

Krakkar...

en svona smá spurning... er það málið að halda aðra sumarbústaðaferð einhvern tíman á næstunni?



» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 01:17:16 / Írena

Myndir - loksins

Okey, þetta er búið að taka langann tíma hjá mér... en núna eru allar myndirnar komnar á netið

OKEY: hérna eru allar myndirnar sem ég tók í ferðinni.. og hananú

http://www.flickr.com/photos/10652411@N05/

http://www.flickr.com/photos/10738998@N07/

 

Og veit einhver hvar ég get sett inn vídjóin??? svo þið getið séð???

 

kv. Írena


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 14:56:40 / Írena

myndir

Hello

Jæja, ég vildi bara þakka ykkur aftur fyrir geggjaða sumarbústaðaferð seinustu helgi...
ég er að vinna að því að henda myndunum inná netið.. og læt ykkur þá vita slóðina...
kv. Írena


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 18:18:42 / Írena

Óvissuferðin

Jæja krakkar.

Við sem mætum erum: (hetjur ?)

Matthildur
Írena
Edda
Fríða
Siggi
Árni
Aggi
Páll Arnar (kemur á lau)
Páll Ingi
Magnús
Ingimar
Gunni
Víkingur (kemur kannski fös eða lau)

Eins og þið vitið þá er bjór á staðnum, ein dæla. En mæli samt með að þið komið með áfengi með ykkur líka ef þið viljið nóg ;)

En þið þurfið að taka með ykkur:
svefnpoka/sæng
kodda og lak.
Mat
sundföt og handklæði (ekki nauðsynlegt, you can always go nude)
aukafatnað
Hlífðarfatnað. (? skothelt vesti, hjálm og hnéhlífar ?)
"áfengi" (gæsalappirnar eru svo þið komið örugglega með eitthvað annað)
og góða skapið ;) - (reyndar kemur það með áfenginu)

Við þurfum að koma okkur saman í bíla... Ég(Írena) og Matthildur og Fríða erum á bíl

Og allir þurfa að svara: !!

Geta allir verið komnir uppí Essó (n1) í Ártúni klukkan 16:50 á morgun???

og þeir sem eiga eftir að borga verða að borga núna í dag/kvöld

einhverjar spurningar??????? (kannski ef ég hefði sett eitt spurningamerki í viðbót þá mundi spurningin hafa öfug áhrif ??)

*allt sem er innan (sviga) skrifaði einhver annar vitleysingur. . . . kk ??


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 21:00:22 / Páll Ingi

Hey kominn tími til

Síðasti dagurinn liðinn í skólanum.

En þann boðskap sem að ég vil færa hérna inn á internetið er að minna alla á að koma í ferðina. Við þurfum a.m.k. 15 manns og hið mesta 17 manns.

Muniði bara það að þetta er síðasta skiptið sem að þessi bekkur hefur séns á að skemmta sér sem bekkur saman. Ég verð að segja að það "harmony" eða stemming sem myndast hefur í bekknum hefur verið ógleymanleg. Aldrei og ég endurtek aldrei hef ég verið í hóp eins og þessum og Hraðbraut er 4. skólinn minn.

Auðvitað er enginn FARINN for good. Við verðum öll auðvitað þarna að ári liðnu en þó ekki sem ein heild. En samt.. .... Það verður alltaf bara einn C bekkur og það er okkar

Við eigum því það skilið eftir PUÐ í nánast heilt ár í gegnum hina ýmsu áfanga að fagna því að ári sé loknu (1+1=1 hjá okkur) að fara að skemmta okkur í óvissuferð. Hin yndisfagra og skemmtilega Matthildur hefur haft töluvert fyrir því að skipuleggja þessa ferð og því yrði það nánast hneyskli ef 15 einstaklingar í þessum bekk finnast ekki til að leggja í slíka óvissuferð.

Ég vil minna á að þarna verður bjór á boðstólnum, gisting og far á svæðið fyrir 3500 kall (ein Vodka flaska). Svo MÆTIÐI sem getið og hafiði samband við Matthildi !!...

GG næs year... i like you all. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 17:22:30 / Írena

Eddukvæði

Þar sem ég er að reyna að vera góð þá ætla ég að deila hérna glósum úr Völuspá, Hávamál og Atlakviðu.

Mæli með glósunum frá flensborg.

 

Völuspá:

http://www.flensborg.is/sveinn/Skrar/Kv%C3%A6%C3%B0i/Voluspa.html

 

hérna eru skýringar á völuspá og með því að færa músabendilinn á feitletruðu orðin þá sjáið þið orðskýringuna.

 

http://www.flensborg.is/sveinn/Skrar/handr/Vspa-aths.htm
 

hérna er sagt frá Völuspá í heild sinni.

 

http://www.ismennt.is/fjar/isl313/voluspa/

 

hérna eru skýringar, verkefni og æfingar úr völuspá. Og einhverjar upplýsingar um Völspá í heild sinni.

 

 

Hávamál:

http://www.flensborg.is/sveinn/Skrar/Kv%C3%A6%C3%B0i/Havamal.html

 

hérna er síða eins og í fyrsta linknum frá Völuspá.. þar sem eru skýringar á Hávamál og þú getur fært músabendilinn á feitletruðu orðin og fengið orðskýringar.

 

http://www.fva.is/harpa/havamal/havamal.htm

hérna er skýring á Hávamál og linkur þar inná aðra síðu með ýmsu gagnlegu úr Hávamáli.

 

http://www.ma.is/kenn/svp/kennsluefni/havamal.htm

hérna er enn önnur endursögn á Hávamál

 

http://www.ismennt.is/fjar/isl313/hmal/skyringar.html

skýring á Hávamálum,

 

Atlakviða:

 

http://www.flensborg.is/sveinn/Skrar/Kv%C3%A6%C3%B0i/Atlakvida.htm

hérna er síða eins og hjá völuspá og hávamál.. skýring á vísunni og hægt að sjá orðskýringar með músabendlinum

 

 

og hérna er eitthvað um eddukvæðin:

http://www.hi.is/~erlad/edda.htm

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 19:35:40 / Írena

Egils saga

 

Þetta er geðveik síða með glósum úr Egils sögu...

þarna getiði fengið ættartréin, landakort, söguþráðinn og lýsingu á persónunum...

 

http://www.fva.is/harpa/egla/adalsida.htm

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 13:30:43 / Kári

Bolti!

Jæja krakkar, eru ekki allir til í smá bolta hérna eða? :D

 

Sýnum lit og mætum á mánudaginn á Stjörnuvöllinn í Garðabænum á mánudaginn klukkan 10 og verum hress á því!

 

Kv. Kári og Gunni 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 00:27:33 / Írena

bara eithvað

Jæja fólk

hef nú eiginlega ekkert að segja, það er bara svo langt síðan einhver bloggaði... og árshátíðin er búin!

En... já.. Allar stelpurnar verða að mæta á laugardaginn... :D

en ég ætla að setja hérna inn eina létta gátu.. :

     Hvað er betra en Guð?
     Hvað er verra en Skrattinn?
     Fátækir eiga það.
     Ríka vantar það.
     Þú deyrð ef þú borðar það.

 

kv. Írena 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 14:18:42 / Siggi

endilega tékkið á skoðanakönnun

allir að taka þátt árshátíðin er 6 maí:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 13:55:16 / Írena

Bekkjarpartý

Ok

Það er þá ákveðið

Á föstudaginn verður bekkjarpartý heima hjá mér... um 9 leytið kannski?

endilega segið ef þið ætlið að mæta...

það er nú orðið svoldið langt síðan það var bekkjarpartý og þar sem það er að koma páskafrí þá er  tilvalið að  halda uppá það...

kveðja, Írena


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 01:27:52 / Páll Ingi

Gramur einstaklingur

"hlutir" sem að ég þoli ekki.


1. Samfylkingin

2. Fólk sem vælir yfir Coke Zero auglýsingum

3. Arsenal

4. Eðlisfræði

5. Vinstri Grænir

6. Arty 101 pakk

7. Hverfisbarinn

8. Íslensk veðrátta

9. Put your hands up for Detroit

10. Þegar maður nær góðri mynd sem er síðan ekki í fókus

11. Gulir bílar

12. Sígarettur

13. Þegar maður opnar svona Bíómjólkurfernu "vitlaust"

14. Yfirborðskennd

15. Þegar fólk hringir stutt og maður nær ekki að svara

16. Spaugstofan

17. Að gamlir karlar geti nauðgað börnum í mörg ár og fái 3 mánaða fangelsisdóm

18. Fólk sem fer með símann sinn inn í ræktina

19. Bakverkir

20. Að gleyma skemmtilegum draumum

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 17:49:45 / Bríet

Gátaláta

jæja ég sé að það eru allir voðalega virkir hérna þannig ég ætla að henda inn einni gátu, það tók mig sólahring að ná henni:^) tékkitát:

 

Hver á fiskinn????? 

Fimm hús í fimm mismunandi litum standa í röð frá vinstri til hægri. Í hverju húsi býr maður af ákveðnu þjóðerni, engir tveir af því sama. Íbúarnir fimm drekka ákveðinn drykk, reykja ákveðna vindlategund og hafa ákveðið gæludýr. Engir tveir þeirra drekka sama drykkinn, reykja sömu vindlategund eða halda sama gæludýrið. Aðrar upplýsingar:

  1. Bretinn býr í rauða húsinu.
  2. Svíinn hefur hunda sem gæludýr.
  3. Daninn drekkur te.
  4. Græna húsið er næsta hús vinstra megin við það hvíta.
  5. Íbúi græna hússins drekkur kaffi.
  6. Sá sem reykir Pall Mall heldur fugla.
  7. Íbúi gula hússins reykir Dunhill.
  8. Íbúi hússins í miðjunni drekkur mjólk.
  9. Norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu.
  10. Sá sem reykir Blends býr við hliðina á þeim sem heldur ketti.
  11. Sá sem á hest býr við hliðina á þeim sem reykir Dunhill.
  12. Sá sem reykir Bluemasters drekkur bjór.
  13. Þjóðverjinn reykir Prince.
  14. Norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu.
  15. Sá sem reykir Blends býr við hliðina á þeim sem drekkur vatn.

gangi ykkur vel:lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 18:42:02 / Írena

nýjar myndir

Ég setti inn myndir hérna... frá bekkjarpartý sem var hjá Ingimar í Október og myndirnar sem voru teknar um daginn í skólanum... og setti myndirnar úr fyrsta bekkjarpartýinu í sama form

Gangi ykkur öllum vel í prófunum ;)

Kv. Írena


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 23:00:36 / Páll Ingi

Eitthvað annað

David Caruso er með þeim sorglegari í bransanum.

Hann leikur í b-þáttunum CSI Miami (Horatio Cane) sem eiga víst að vera rosa vinsælir. Greinilega mikið af "vanheilu" fólki í þjóðfélaginu, ekki nema þá að fólk horfi á þessa þætti sem grínþætti.

Nokkrir one'liners hjá kjallinum View - Það er vel hægt að hlægja af þessu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4